U16 kvenna - 3-0 sigur gegn Eistlandi í fyrsta leik á UEFA Development Tournament
U16 ára landslið kvenna vann 3-0 sigur á Eistlandi í fyrsta leik liðsins á UEFA Development Tournament. Jana Sól Valdimarsdóttir skoraði tvö mörk og Ólöf Sigríður Kristinsdóttir eitt.
Ísland var mun sterkari aðilinn í leiknum og voru stelpurnar ekki langt frá því að skora fleiri mörk.
Næsti leikur liðsins er á miðvikudaginn þegar þær mæta Litháen, en sá leikur hefst klukkan 12:00 að íslenskum tíma.
Byrjunarlið Íslands:
Cecilía Rán Rúnarsdóttir (M)
Kristín Erla Ó. Johnson
Kristjana R. Kristjánsdóttir Sigurz
Arna Eiríksdóttir
Ragna Guðrún Guðmundsdóttir
Clara Sigurðardóttir (F)
Birta Georgsdóttir
Ída Marín Hermannsdóttir
Jana Sól Valdimarsdóttir
Hafrún Rakel Halldórsdóttir
Tinna Harðardóttir