KSÍ/FIFA auglýsir eftir starfsmanni
KSÍ óskar eftir að ráða öflugan einstakling tímabundið á skrifstofu sambandsins vegna samstarfsverkefnis FIFA og KSÍ um frekari þróun á kvennaknattspyrnu.
Helstu verkefni:
-Greiningarvinna á leyfiskerfi fyrir efstu deild kvenna.
-Starfsemi tengd leyfiskerfi KSÍ
-Vinna við reglugerðir
-Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
-Lögfræðimenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
-Góð þekking á knattspyrnu og helst bakgrunnur innan knattspyrnuhreyfingarinnar.
-Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi gott vald á íslensku og ensku.
-Góð þekking á forritum Office og hvers kyns tölvuvinnslu
-Skipulagshæfni og nákvæmni í starfi.
-Góð samskiptafærni
Starfið er tímabundið frá 1. júní til 31. desember 2018.
Upplýsingar veitir Haukur Hinriksson lögfræðingur hjá KSÍ í síma 510-2900.
Umsóknum skal skilað með tölvupósti til haukur@ksi.is eigi síðar en 16. apríl nk.