Mjólkurbikarinn snýr aftur
Það muna eflaust margir eftir því þegar Bikarkeppni KSÍ bar yfirskriftina Mjólkurbikarinn og er því skemmtilegt að greina frá því að nú í sumar snýr Mjólkurbikarinn aftur. Samstarfssamningur KSÍ, Mjólkursamsölunnar og Sýnar var undirritaður í húsakynnum KSÍ í dag, 5. apríl af þeim Guðna Bergssyni, formanni KSÍ, Ara Edwald, forstjóra Mjólkursamsölunnar og Stefáni Sigurðssyni, forstjóra Sýnar. Að lokinni undirskrift var að sjálfsögðu skálað í mjólk í þar til gerðum mjólkurbikar og ekki þótti gestum verra að gæða sér á súkkulaðiköku í leiðinni.
Ari Edwald, forstjóri Mjólkursamsölunnar:
„Það er okkur mikil ánægja að vera þátttakendur í þessu skemmtilega verkefni sem Bikarkeppni KSÍ er og eiga þátt í því að endurvekja gamla og góða Mjólkurbikarinn sem svo margir minnast með hlýjum huga. Við hlökkum til að fylgjast með æsispennandi keppni í sumar og bíðum spennt eftir að skála í mjólk með verðandi Mjólkurbikarmeisturum í september.“
Guðni Bergsson, formaður KSÍ:
„Ég er mjög ánægður með þennan samning og vænti mikils af samstarfinu milli MS, KSÍ og félaganna. Mjólkursamsalan hefur sterkar rætur í íslensku samfélagi og hefur mikla tengingu við íþróttahreyfinguna. Bikarkeppni KSÍ hét einmitt Mjólkurbikarinn um árabil og eflaust mörg okkar sem muna vel eftir því.“
Mjólkurbikar karla hefst fimmtudaginn 12. apríl með fimm leikjum í karlaflokki en þá mætast Ýmir og KV, Álftanes og Ísbjörninn, ÍR og Ægir, Grótta og Vatnaliljur, Augnablik og Kormákur/Hvöt og loks Berserkir og Reynir S. Alls eru 27 leikir á dagskrá í fyrstu umferð karla sem lýkur sunnudaginn 22. apríl. Mjólkurbikar kvenna hefst laugardaginn 5. maí en þá mætast lið Álftaness og Fjölnis á Bessastaðavelli en alls eru níu leikir á dagskrá í fyrstu umferð kvenna sem lýkur mánudaginn 21. maí.
58 ár eru síðan bikarkeppni KSÍ var haldin í fyrsta sinn en það var árið 1960 sem fyrst var keppt um bikarinn og verður spennandi að sjá hvaða lið standa uppi sem sigurvegarar í lok sumars en leikið verður til úrslita í Mjólkurbikar karla laugardaginn 15. september og kvenna laugardaginn 18. ágúst á Laugardalsvelli.