U16 karla - 2-1 sigur gegn Eistlandi í fyrsta leik í UEFA Development Tournament
U16 ára lið karla vann 2-1 sigur á Eistlandi í fyrsta leik liðsins á UEFA Development Tournament, en leikið er í Gargzdai í Litháen.
Það voru Orri Hrafn Kjartansson og Davíð Snær Jóhannsson sem skoruðu mörk Íslands.
Ísland mætir Litháen í næsta leik, en hann fer fram á fimmtudaginn og hefst klukkan 08:00 að íslenskum tíma.
Byrjunarlið Íslands:
Ólafur Kristófer Helgason (M)
Bjartur Bjarmi Barkarsson
Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson
Oliver Stefánsson
Elmar Þór Jónsson
Jón Gísli Eyland Gíslason
Ísak Bergmann Jóhannesson
Davíð Snær Jóhannsson (F)
Orri Hrafn Kjartansson
Mikael Egill Ellertsson
Danijel Dejan Djuric