Útgefin þátttökuleyfi á öðrum fundi leyfisráðs
Annar fundur leyfisráðs í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2018 fór fram í gær miðvikudag og voru þátttökuleyfi 15 félaga samþykkt. Sjö af leyfunum 15 eru gefin út með fyrirvara. Níu félög fengu útgefin þátttökuleyfi á fundi ráðsins fyrir viku síðan.
Þar með hafa öll 24 félögin í efstu tveimur deildum karla fengið útgefin þátttökuleyfi, en þó sjö með fyrirvörum vegna vallarmála eða frekari gagnaskila fyrir 31. mars nk.
Samþykktar leyfisumsóknir á fundi leyfisráðs 14. mars:
Samþykktar leyfisumsóknir í Pepsi-deild karla:
- FH
- Fjölnir (með fyrirvara um samþykki á vallarleyfi)
- ÍBV (með fyrirvara um samþykki á vallarleyfi)
- KA (með fyrirvara um samþykki á vallarleyfi)
- Stjarnan
- Valur
- Víkingur R. (með fyrirvara um gagnaskil 31. mars)
Samþykktar leyfisumsóknir í Inkasso deild karla:
- Fram (með fyrirvara um gagnaskil 31. mars)
- Haukar (með fyrirvara um gagnaskil 31. mars)
- HK
- ÍR
- Magni (með fyrirvara um samþykki á vallarleyfi)
- Selfoss
- Víkingur Ó.
- Þór