Níu þátttökuleyfi útgefin á fyrri fundi leyfisráðs
Fyrri fundur leyfisráðs í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2018 fór fram í gær. Níu félög fengu útgefin þátttökuleyfi, en afgreiðslu leyfisumsókna 15 félaga var frestað um eina viku. Ráðið kemur aftur saman á miðvikudag í næstu viku.
Samþykktar leyfisumsóknir í Pepsi-deild karla:
- Breiðablik
- Fylkir
- Grindavík
- Keflavík
- KR
Samþykktar leyfisumsóknir í Inkasso deild karla:
- ÍA
- Leiknir R.
- Njarðvík
- Þróttur R.
Ákvörðunum vegna leyfisumsókna annarra félaga í Pepsi-deild karla og Inkasso-deild karla var frestað um eina viku.