Styrkir vegna verkefna á sviði háttvísi eða samfélagslegrar ábyrgðar
Eins og kynnt var með frétt á vef KSÍ í lok desember hafnaði Ísland í fyrsta sæti á háttvísilista UEFA, en listinn og stigasöfnunin náði til leikja félagsliða og landsliða á vegum UEFA frá 1. júlí 2016 til 30. júní 2017. Þessum árangri fylgir allt að 50 þúsund evra styrkur frá UEFA, sem eyrnamerktur er verkefnum á vegum aðildarfélaga, sem snúa að háttvísi eða samfélagslegri ábyrgð.
Aðildarfélögum KSÍ er hér með boðið að sækja um hlutdeild í styrknum vegna slíkra verkefna á þeirra vegum. Skilyrði er að verkefnið sé á vegum viðkomandi aðildarfélags og snúi að háttvísi eða samfélagslegri ábyrgð.
Lokaskiladagur umsókna er 10. mars. Með umsóknum þurfa eftirfarandi upplýsingar að fylgja:
- Almennt um verkefnið, tilgang þess og markmið.
- Tengdir aðila og samstarfsaðilar um verkefnið.
- Kynningaráætlun verkefnisins.
- Mælikvarði árangurs.
- Fjármögnun verkefnisins og þá hversu stór hluti fjármögnunar sé fjármagn frá UEFA.
- Tímarammi verkefnisins og lykiláfangar - upphaf, milliáfangar og lok.
Tekið er fram að heildarupphæð styrksins er 50 þúsund evrur, sem getur skipst á fleiri en eina umsókn.
Umsóknir eða fyrirspurnir sendist á klara@ksi.is.