RÚV fær Fjölmiðlaviðurkenningu KSÍ
Fjölmiðlaviðurkenningu KSÍ fyrir árið 2017 hlýtur íþróttadeild RÚV fyrir þættina „Leiðin á EM“, heimildaþáttaröð í umsjá Eddu Sifjar Pálsdóttur og Maríu Bjarkar Guðmundsdóttur.
Þættirnir fjölluðu um í A landslið kvenna í aðdraganda úrslitakeppni EM 2017, sem fram fór í Hollandi. Í þáttunum, sem vöktu mikla athygli fyrir ferska og nýja nálgun, var skyggnst bak við tjöldin hjá landsliðinu, leikmenn og þjálfarar teknir tali og fylgst með undirbúningi liðsins.