A karla í 20. sæti á styrkleikalista FIFA
A landslið karla er í 20. sæti á nýútgefnum styrkleikalista FIFA og hækkar um tvö sæti á milli mánaða. Ísland hefur hæst verið í 19. sæti. Ekki er um miklar breytingar á listanum að ræða, enda tiltölulega fáir landsleikir farið fram síðustu vikur. Hástökkvarar mánaðarins eru Kúvæt og Túnis.