Vinnufundur með leyfisfulltrúum félaga nk. mánudag, 8. janúar
Boðað er til fundar með leyfisfulltrúum og endurskoðendum félaga í Pepsi-deild karla og Inkasso-deild karla í höfuðstöðvum KSÍ (3. hæð) mánudaginn 8. janúar nk. kl. 15:00.
Um er að ræða árlegan fund þar sem farið verður yfir breytingar milli ára og hagnýt atriði. Reiknað er með að fundurinn verði ekki lengri en 60 mínútur.
Helstu málefni á vinnufundi 2018:
• Breytingar á leyfisreglugerð KSÍ
• Mögulegar framtíðarbreytingar hjá UEFA
o Leyfiskerfi fyrir kvennaknattspyrnu
o Vernd barna- og unglinga hjá félögum
o Hugtakið „Skuldleysi“
• Áherslur á leyfistímabilinu 2018
o Aðgengi fatlaðra stuðningsmanna
• Fjárhagsþættir
o Uppfærð forskrift ársreikninga
o Önnur uppfærð form í tækjakassa