U17 karla - Hópurinn sem fer til Hvíta Rússlands í lok janúar
Þorlákur Árnason hefur valið hóp sem fer til Hvíta Rússlands í lok janúar og tekur þar þátt í æfingamóti.
Mótið er liður í undirbúningi liðsins fyrir milliriðla í undankeppni EM 2018.
Mótið fer fram í Hvíta Rússlandi dagana 21.-28. janúar næstkomandi og taka 12 lið þátt í því. Þegar riðlakeppninni er lokið hefjast innbyrðis viðureignir milli riðla og mun Ísland því í heildina leika fimm leiki.
Hér að neðan má sjá hópinn í viðhengi, en athygli er vakin á því að fimm leikmenn eru utan hóps en tilbúnir ef einhver forföll verða.