Fyrra mark Íslands í 2- 0 sigri á Tyrklandi nú skráð á Theodór Elmar Bjarnason
Í 2-0 sigri Íslands á Tyrklandi 9. Október 2016, í undankeppni HM, var fyrra mark Íslands skráð sem sjálfsmark af FIFA.
Þetta hefur hins vegar breyst, en FIFA hefur nú skráð markið á Theodór Elmar Bjarnason.
Í samræmi við það hafa UEFA og KSÍ í kjölfarið breytt sinni skráningu.