• mið. 06. des. 2017
  • Landslið

Dregið í undakeppni U17 og U19 karla fyrir EM 2019

uefa-logo-biglandscape
uefa-logo-biglandscape

Í dag var dregið í undankeppni EM 2019 í bæði U17 og U19 karla og var Ísland að sjálfsögðu á meðal liða. 

U17 karla var dregið í riðil 2 með Bosníu og Hersegóvínu, Úkraínu og Gíbraltar. Riðillinn verður leikinn í Bosníu og Hersegóvínu 10.-16. október 2018. Lokakeppnin verður síðan haldin á Írlandi í maí 2019.

U19 karla var dregið í riðil 5 með Englandi, Tyrklandi og Moldavíu. Riðillinn verður leikinn í Tyrklandi dagana 14.-20. nóvember 2018. Lokakeppnin verður síðan haldin í Armeníu í júlí 2019.

Áfram Ísland!