Ársþing KSÍ á Hilton Reykjavik Nordica 10. febrúar 2018
72. ársþing KSÍ verður haldið á Hilton Reykjavík Nordica, 10. febrúar næstkomandi.
Tillögur og málefni þau er sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þingi skulu berast stjórn KSÍ minnst mánuði fyrir þing eða í síðasta lagi miðvikudaginn 10. janúar næstkomandi.
Þingið verður sett kl. 11:00, laugardaginn 10. febrúar, og er gert ráð fyrir að því ljúki um kl. 16:00 sama dag.
Nánari dagskrá ásamt upplýsingum verður send sambandsaðilum síðar.