Þorvaldur dæmir í Frakklandi
Þorvaldur Árnason mun dæma leik Frakklands og Búlgaríu í undankeppni EM U21 karla, en leikið verður í Le Mans í Frakklandi.
Þorvaldi til aðstoðar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Birkir Sigurðarson. Fjórði dómari leiksins verður Þóroddur Hjaltalín.