A karla - Diego Jóhannesson kallaður inn í landsliðshópinn
Heimir Hallgrímsson, þjálfari A landsliðs karla, hefur kallað Diego Jóhannesson inn í hópinn sem mætir Tékklandi og Katar í vináttuleikjum í Katar 8. og 14. nóvember nk.
Diego kemur inn í stað Birkir Más Sævarssonar, en hann er meiddur.
Áfram Ísland!