A kvenna - Byrjunarliðið gegn Þýskalandi í dag
Kvennalandslið Íslands mætir Þýskalandi í Wiesbaden í dag en eikurinn er liður í undankeppni HM 2019.
Freyr Alexandersson hefur valið byrjunarliðið fyrir leikinn í dag og er það skipað eftirtöldum leikmönnum:
Mark: Guðbjörg Gunnarsdóttir
Vörn: Ingibjörg Sigurðardóttir, Sif Atladóttir og Glódís Perla Viggósdóttir
Miðja: Hallbera Guðný Gísladóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir (f), Dagný Brynjarsdóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Rakel Hönnudóttir
Sókn: Fanndís Friðriksdóttir og Elín Metta Jensen
Leikurinn hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma og verður sýndur beint á RÚV.