A kvenna - Ísland mætir Þýskalandi í dag
Ísland leikur annan leik sinn í undankeppni HM 2019 í dag þegar liðið mætir Þýskalandi á BRITA arena í Wiesbaden. Hefst leikurinn klukkan 14:00 að íslenskum tíma.
Fyrsti leikur liðsins var gegn Færeyjum í september þar sem Ísland vann öruggan 8-0 sigur gegn Færeyjum á Laugardalsvelli. Þýskaland hefur hins vegar leikið tvo leiki og unnið þá báða. Liðið vann Slóveníu 6-0 heima og Tékklandi 1-0 á útivelli. Þess má geta að Ísland leikur síðan við Tékkland á þriðjudaginn næstkomandi.
Þetta er í 15 sinn sem liðið mætast og hefur Þýskaland unnið alla 14 leikina til þessa.
Allir leikmenn Íslands eru klárir í leikinn og hefur undirbúningur liðsins gengið mjög vel í Þýskalandi.