• lau. 07. okt. 2017
  • Landslið

U17 kvenna - Ísland leikur við Spán í dag

22345492_2098291347060229_679291857_o

U17 ára lið kvenna leikur við Spán í dag seinasta leikinn í sínum riðli í undankeppni EM 2018. Leikið er í Azerbaijan og hefst leikurinn klukkan 15:00.

Ísland er nú þegar komið í milliriðla, eins og Spánn. Ísland vann Azerbaijan 2-0 og Svartfjallaland 6-0 á meðan Spánn vann Svartfjallaland 22-0 og Azerbaijan 3-0. Liðin eru því bæði með sex stig. 

Byrjunarlið Íslands í dag:

Markmaður - Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving 

Vinstri bakvörður - Íris Þórðardóttir 

Hægri bakvörður - Karólína Jack, fyrirliði 

Miðverðir - Katla Þórðardóttir og Hildur Þóra Hákonardóttir 

Miðja - Ísafold Þórhallsdóttir, Clara Sigurðardóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 

Hægri kantur - Barbára Gísladóttir 

Vinstri kantur - Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir 

Framherji - Helena Ósk Hálfdánardóttir

Áfram Ísland!