A karla - Ísland - Tyrkland í dag
Ísland mætir Tyrklandi í dag í næst síðasta leik sínum í undankeppni HM 2018, en leikið er í Eskisehir. Hefst leikurinn klukkan 18:45 að íslenskum tíma.
Leikurinn er að sjálfsögðu gríðarlega mikilvægur, fyrir bæði lið, í baráttunni um sæti á HM í Rússlandi næsta sumar.
Baráttan í riðlinum er mikil og eiga fjögur lið raunhæfa möguleika á því að komast til Rússlands.
Staðan í riðlinum
Ísland og Króatía sitja á toppi riðilsins með 16 stig, þó Króatía sé með betri markatölu. Í þriðja og fjórða sæti eru síðan Úkraína og Tyrkland með 14 stig. Leikurinn í Tyrklandi er því gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið.
Á sama tíma og leikur Íslands fer fram á Króatía heimaleik gegn Finnlandi og Úkraína útileik gegn Kosóvó.
Síðasta umferð riðilsins lítur síðan svona út:
Finnland - Tyrkland
Úkraína - Króatía
Ísland - Kosóvó
Það er því ljóst að mikilvægt er fyrir Ísland að ná úrslitum í Tyrklandi og hefur Heimir Hallgrímsson nú þegar sagt að liðið ætli sér sigur. Sigur í þessum leik myndi þýða að góður möguleiki væri fyrir Ísland að vinna riðilinn, jafntefli myndi væntanlega þýða að sigur gegn Kosóvó fleyti Íslandi í umspil.
Áfram Ísland!