U17 karla - Ísland komið í milliriðil
U17 ára lið karla er komið í milliriðil í undankeppni EM 2018, en liðið vann Rússland 2-0 í dag. Leikið er í Finnlandi.
Andri Lucas Guðjohnsen skoraði bæði mörk Íslands í dag, úr vítaspyrnu á 25. mínútu og síðan bætti hann við marki fimm mínútum síðar
Ísland endaði því með sjö stig, eins og Finnland, en Finnland endar í 1. sæti riðilsins á markatölu eftir að hafa unnið Færeyjar 4-0 á sama tíma. Rússland er síðan í þriðja sæti með þrjú stig og Færeyjar á botninum án stiga.
Byrjunarlið Íslands í dag:
Markvörður: Sigurjón Daði Harðarson
Varnarmenn: Atli Barkarson, Finnur Tómas Pálmason, Guðmundur Axel Hilmarsson og Teitur Magnússon
Miðjumenn: Jóhann Árni Gunnarsson, Ísak Snær Þorvaldsson og Sölvi Snær Fodilsson
Kantmenn: Kristall Máni Ingason og Karl Friðleifur Gunnarsson
Framherji: Andri Lucas Guðjohnsen
Áfram Ísland!