Ísland - Kósóvó : Miðar fyrir handhafa A og DE skírteina
Handhafar A og DE skírteina frá KSÍ fá afhenta aðgöngumiða á leik Íslands og Kósóvó í undankeppni HM A landsliða karla, fimmtudaginn 21. september frá kl.12:00 á hádegi til kl. 16:00, eða á meðan birgðir endast. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.
Möguleiki er að panta miða í síma 510 2900 á sama tíma, þ.e. þau sem ekki komast að sækja miða á tilgreindum degi/tíma. Athugið að takmarkað magn af miðum er í boði á þennan leik og athugið jafnframt að einungis er afhentur einn miði til viðkomandi handhafa skírteinis, þ.e. ekki er hægt að panta eða sækja fyrir aðra.
Leikur Íslands og Kósóvó fer fram á Laugardalsvelli, mánudaginn 9. október og hefst kl. 18:45 en uppselt er á leikinn.