Hæfileikamótun N1 og KSÍ í Reykjavík
Hæfileikamótun KSÍ og N1 fyrir stelpur á höfuðborgarsvæðinu verður í Egilshöll laugardaginn 23. september og eru þetta æfingar fyrir stúlkur fæddar 2003 og 2004.
Hæfileikamótun KSÍ og N1 fyrir drengi á höfuðborgarsvæðinu verður sömu helgi, sunnudaginn 24. september, í Egilshöll og eru þetta einnig æfingar fyrir drengi fædda 2003 og 2004.
Skipt er niður í hópa eftir félögum sem má sjá hér að neðan ásamt nafnalista leikmanna.
Helstu markmið hæfileikamótunar KSÍ eru að:
• Fjölga þeim leikmönnum sem fylgst er með.
• Fylgjast með yngri leikmönnum en áður og undirbúa þá fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar.
• Koma til móts við minni staði á landsbyggðinni og mæta þeirra þörfum.
• Koma til móts við leikmenn stærri félaga á höfuðborgarsvæðinu sem að öllu jöfnu væru ekki valdir á landsliðsæfingar.
• Bæta samskipti við aðildarfélögin og kynna fyrir þeim stefnu KSÍ í landsliðsmálum.
• Undirbúa leikmenn enn betur til þess að mæta á landsliðsæfingar seinna með fræðslu
Stúlkur
Drengir