Ísland er með í FIFA 18 tölvuleiknum
Samningar hafa náðst á milli EA SPORTS™ og KSÍ um að íslenska karlalandsliðið verði með í FIFA 18 sem er einn vinsælasti tölvuleikur í heimi. Þetta eru góðar fréttir fyrir þá tugi þúsunda spilara sem að spila leikinn hér á landi og auðvitað hina fjölmörgu FIFA spilara um allan heim sem hafa hrifist af leik og árangri liðsins undanfarin misseri.
Sena, sem gefur leikinn út á Íslandi, og EA SPORTS hafa af þessu tilefni látið útbúa sérstaka kápu utan um leikinn sem skartar íslensku landsliðstreyjunni. Þessi útgáfa leiksins verður aðeins fáanleg í verslunum á Íslandi. Útgáfudagur FIFA 18 er 29. september.
Guðni Bergsson formaður KSÍ er mjög ánægður með að íslenska landsliðið verði nú í þessum vinsæla leik.
“Ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu og tel þetta vera góð tíðindi fyrir alla þá sem spila leikinn hér á landi og í raun um allan heim. Mér finnst þetta jákvætt markaðslega fyrir íslenskan fótbolta, gaman fyrir okkar stuðningsmenn og einnig leikmennina sjálfa”