U19 karla - Ísland vann Wales 1-0
U19 ára landslið karla mætti á mánudaginn Wales í æfingaleik, en liðin mættust einnig á laugardaginn síðasta og hafði Ísland þá 4-0 sigur.
Ísland vann leikinn 1-0 og var það Ástbjörn Þórðarson sem skoraði mark liðsins.
Byrjunarlið Íslands í leiknum:
Markvörður - Aron Dagur Birnuson.
Hægri bakvörður - Ástbjörn Þórðarson.
Miðverðir - Aron Kári Aðalsteinsson og Torfi T. Gunnarsson (fyrirliði).
Vinstri bakvörður - Ísak Atli Kristjánsson.
Miðjumenn - Alex Þór Hauksson, Kolbeinn Birgir Finnsson og Arnór Sigurðsson
Hægri kantur - Atli Hrafn Andrason
Vinstri kantur - Guðmundur Andri Tryggvason
Sóknarmaður - Stefán Alexander Ljubicic