U19 karla - 4-0 sigur á Wales í dag
U19 ára landslið karla lék í dag æfingaleik við Wales, en leikið var á Corbett Sport Stadium í Rhyl.
Leikurinn endaði með 4-0 sigri Íslands en Stefán Alexander Ljubicic og Guðmundur Andri Tryggvason skoruðu báðir tvö mörk.
Liðin leika aftur á mánudag, 4. september, en hefst sá leikur klukkan 16:00 að íslenskum tíma.
Byrjunarlið Íslands var svona:
Markmaður: Aron Birkir Stefánsson.
Hægri bakvörður: Ástbjörn Þórðarson.
Miðverðir: Aron Kári Aðalsteinsson og Torfi T. Gunnarsson (fyrirliði).
Vinstri bakvörður: Ísak Atli Kristjánsson.
Miðjumenn: Alex Þór Hauksson, Arnór Sigurðsson og Kolbeinn Birgir Finnsson.
Hægri kantur: Atli Hrafn Andrason.
Vinstri kantur: Guðmundur Andri Tryggvason.
Sóknarmaður: Stefán Alexander Ljubicic.