A karla – Hópurinn sem mætir Finnlandi og Úkraínu
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn sem mætir Finnlandi og Úkraínu í undankeppni HM 2018. Leikurinn gegn Finnum fer fram í Tampere laugardaginn 2. september og hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma en leikurinn gegn Úkraínu verður á Laugardalsvelli þriðjudaginn 5. september kl. 18:45.
Uppselt er á leik Íslands og Úkraínu en ákveðið hefur verið að endurtaka leikinn frá því í júní og vera með Stuðningsmannasvæði á bílastæðinu fyrir framan Laugardalsvöll. Á svæðinu verða leiktæki fyrir börn og mun leikurinn sjálfur verða sýndur á risaskjá sem settur verður upp á svæðinu. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið á þessu verður kynnt á næstu dögum.
Hópurinn sem mætir Finnlandi og Úkraínu er skipaður eftirtöldum leikmönnum.
Sóknarmenn | L | M | Félag |
Alfreð Finnbogason | 41 | 11 | FC Augsburg |
Jón Daði Böðvarsson | 32 | 2 | Reading FC |
Björn Bergmann Sigurðarson | 7 | 1 | Molde FK |
Miðjumenn | |||
Aron Einar Gunnarsson | 70 | 2 | Cardiff City FC |
Birkir Bjarnason | 58 | 8 | Aston Villa FC |
Emil Hallfreðsson | 58 | 1 | Udinese Calcio |
Jóhann Berg Guðmundsson | 58 | 5 | Burnley FC |
Gylfi Þór Sigurðsson | 50 | 15 | Everton FC |
Rúrik Gíslason | 40 | 3 | 1.FC Nürnberg |
Ólafur Ingi Skúlason | 28 | 1 | Kardemir Karabükspor |
Arnóri Ingvi Traustason | 13 | 5 | AEK |
Rúnar Már Sigurjónsson | 12 | 1 | Grasshopper Club |
Varnarmenn | |||
Birkir Már Sævarsson | 72 | 1 | Hammarby |
Ragnar Sigurðsson | 69 | 3 | Rubin Kazan FC |
Kári Árnason | 60 | 3 | Aberdeen FC |
Ari Freyr Skúlason | 49 | KSC Lokeren | |
Sverrir Ingi Ingason | 11 | 3 | Rostov FC |
Hörður Björgvin Magnússon | 10 | 2 | Bristol City FC |
Jón Guðni Fjóluson | 10 | IFK Norrkoping | |
Hjörtur Hermannsson | 3 | Brøndby IF | |
Markmenn | L | M | Félag |
Hannes Þór Halldórsson | 44 | Randers FC | |
Ingvar Jónsson | 5 | Sandefjord | |
Rúnar Alex Rúnarsson | 0 | FC Nordsjæland |