• mán. 21. ágú. 2017
  • Landslið

Ísland - Úkraína : Miðar fyrir handhafa A og DE skírteina

Áhorfendur á Ísland-Tyrkland
ahorfendur

Handhafar A og DE skírteina frá KSÍ fá afhenta aðgöngumiða á leik Íslands og Úkraínu í undankeppni HM A landsliða karla, fimmtudaginn 24. ágúst frá kl.12:00 á hádegi til kl. 16:00, eða á meðan birgðir endast. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.

Möguleiki er að panta miða í síma 510 2900 á sama tíma, þ.e. þau sem ekki komast að sækja miða á tilgreindum degi/tíma. Athugið að takmarkað magn af miðum er í boði á þennan leik og athugið jafnframt að einungis er afhentur einn miði til viðkomandi handhafa skírteinis, þ.e. ekki er hægt að panta eða sækja fyrir aðra.

Leikur Íslands og Úkraínu fer fram á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 5. september og hefst kl. 18:45 en uppselt er á leikinn.