Þorvaldur dæmir í Svíþjóð
Þorvaldur Árnason verður í eldlínunni miðvikudaginn 12.júlí þegar hann dæmir leik Malmö og FK Vardar í Meistaradeild Evrópu, en leikið verður í Malmö í Svíþjóð. Þetta er fyrri viðureign liðanna í 2. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu.
Þorvaldi til aðstoðar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Gylfi Már Sigurðsson. Gunnar Jarl Jónsson verður fjórði dómari.