U19 kvenna - Keppni í milliriðli fyrir EM hefst í dag
U19 kvenna leikur í milliriðli fyrir EM í vikunni og er fyrsti leikur liðsins í dag gegn Þýskalandi.
Ísland er í riðli með Þýskalandi, Sviss og Póllandi en næsti leikur er á föstudaginn gegn Sviss en svo er seinasti leikur riðilsins gegn Póllandi á mánudaginn.
Eitt lið fer áfram úr milliriðli.
Hægt er að fylgjast með leikjum Íslands á vef UEFA í beinni textalýsingu.