U19 kvenna - Jafntefli gegn Ungverjum
U19 kvenna gerði 1-1 jafntefli við Ungverjaland þegar liðin mættust í vináttulandsleik á Grosics Gyula Stadion í Tatabánya í Ungverjalandi í morgun. Anna Rakel Pétursdóttir skoraði mark Íslands á 25. mínútu leiksins en Anna átti glæsilegt skot sem endaði í marki ungverska liðsins.
Lið Íslands í leiknum: Telma Ívarsdóttir - Dröfn Einarsdóttir, Melkorka Katrín Fl. Pétursdóttir (Margrét Eva Sigurðardóttir), Mist Þormóðsdóttir Grönvold, Anna Rakel Pétursdóttir - Andrea Mist Pálsdóttir (f) (Isabella Eva Aradóttir), Selma Sól Magnúsdóttir (Kristín Dís Árnadóttir), Rannveig Bjarnadóttir (Elma Mekkin Dervic) - Guðrún Gyða Haralz (Eva María Jónsdóttir), Thelma Lóa Hermannsdóttir, Kristín Þóra Birgisdóttir (Ásdís Karen Halldórsdóttir).
Liðin mættust einnig á þriðjudaginn þar sem Ungverjar höfðu betur, 2-0.