U17 kvenna - Sigur gegn Portúgal dugði ekki til
U17 kvenna vann í dag góðan 4-1 sigur á Portúgal í milliriðli fyrir EM. Alexandra Jóhannsdóttir skoraði þrennu í leiknum og Sveindís Jane Jónsdóttir eitt mark.
Ísland hafnaði í öðru sæti riðilsins með sex stig en Spánn vann riðilinn með sjö stig. Eitt lið fer áfram úr riðlinum og leikur í úrslitakeppninni. Þýskaland tryggði sér sæti í úrslitakeppninni með bestan árangur í 2.sæti en liðið var með betri markamun en Ísland sem kemst ekki áfram að þessu sinni.
Engu að síður frábær árangur hjá stelpunum okkar sem unnu tvo leiki en lutu í lægra haldi gegn sterku liði Spánverja.