Kvennalandsliðið í næstefsta styrkleikaflokki
Kvennalandsliðið verður í næstefsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir undankeppni HM 2019 þann 25. apríl. Styrkleikaflokkarnir eru fimm og verður dregið í sjö riðla. Efsta lið hvers riðils kemst beint á HM, og fjögur lið með bestan árangur í 2. sæti fara í umspil um tvö laus sæti til viðbótar.
Úrslitakeppnin sjálf fer svo fram í Frakklandi og komast gestgjafarnir beint í úrslitakeppnina en Frakkar eru einmitt fyrstu mótherjar Íslendinga í úrslitakeppni EM í sumar.
Í efsta flokknum eru Þýskaland, England, Noregur, Svíþjóð, Spánn, Sviss og Ítalía.
Í B-flokki eru Holland, Ísland, Skotland, Danmörk, Austurríki, Belgía og Rússland.
Í C-flokki eru Finnland, Úkraína, Wales, Rúmenía, Pólland, Tékkland og Írland.
Í D-flokki eru Portúgal, Serbía, Ungverjaland, Bosnía, Hvíta-Rússland, Slóvakía og Slóvenía.
Í E-flokki eru Norður-Írland, Króatía og fimm þjóðir sem komast áfram úr forkeppni.