U17 kvenna - Góður sigur á Svíum í milliriðli fyrir EM
U17 ára landslið kvenna vann frábæran 1-0 sigur á Svíum í fyrsta leik sínum í milliriðli Evrópumótsins en riðillinn er leikinn í Portúgal. Stefanía Ragnarsdóttir leikmaður Þróttar Reykjavíkur skoraði sigurmarkið á 8. mínútu leiksins.
Stefanía Ragnarsdóttir leikmaður Þróttar R., skoraði sigurmarkið á 8. mínútu leiksins en skömmu síðar átti hún skot í stöngina. Næsti leikur Íslands er gegn Spáni á fimmtudaginn og síðasti leikurinn verður á móti Portúgal á sunnudaginn.
Sigurliðið í riðlinum kemst í átta liða úrslit Evrópukeppninnar sem leikin er í sumar og eitt lið með bestan árangur í milliriðlunum fer einnig beint í úrslitakeppnina.
Byrjunarlið Íslands var þannig skipað:
Markmaður: Birta Guðlaugsdóttir
Hægri bakvörður: Eygló Þorsteinsdóttir
Vinstri bakvörður: Daníela Dögg Guðnadóttir
Miðverðir: Guðný Árnadóttir og Sóley María Steinarsdóttir
Miðja: Alexandra Jóhannsdóttir (fyrirliði), Stefanía Ragnarsdóttir og Hulda Björg Hannesdóttir
Hægri kantur: Hlín Eiríksdóttir
Vinstri kantur: Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Framherji: Sveindís Jane Jónsdóttir