U21 karla - Ísland mætir Georgíu klukkan 10:00 í dag - Byrjunarliðið
U21 karla leikur seinni leik sinn við Georgíu á laugardagsmorgun en leikurinn hefst klukkan 10:00. Fyrri leikur liðanna endaði með 3-1 sigri Georgíu en þar fengu margir leikmenn að stíga sín fyrsta skref með landsliðinu.
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið og er það þannig skipað:
Markvörður: Jökull BlængssonVörn: Alfons Sampsted, Axel Óskar Andrésson, Hans Viktor Guðmundsson og Aron Ingi Kristinsson.
Miðja: Ægir Jarl Jónasson og Viktor Karl Einarsson.
Kantar: Jón Dagur Þorsteinss og Ásgeir Sigurgeirsson.
Í framlínu leika síðan: Albert Guðmundsson (fyrirliði) og Arnór Gauti Ragnarsson.
Hægt verður að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu hér.