Íslenskir dómarar á CORE námskeiði í Sviss
Um þessar mundir eru þrír íslenskir dómarar staddir í Sviss á svokölluðu "CORE" námskeið sem haldið er á vegum UEFA. Um er að ræða verkefni fyrir unga og efnilega dómara en CORE stendur fyrir "Center of Refereeing Excellence" en þetta verkefni snýr að þjálfun og menntun dómara framtíðarinnar.
Íslensku dómararnir, sem eru þeir Heilgi Mikael Jónasson, Gylfi Tryggvason og Þórður Arnar Árnason, verða þarna í 10 daga og munu svo sækja annað námskeið á næsta ári. Er hér um að ræða áætlun um þjálfun og menntun dómara á aldrinum 25. - 30 ára.