EM kvenna - Miðasölu fyrir stuðningsmenn Íslands lokið
Sérstakri miðasölu fyrir stuðningsmenn á leiki Íslands á EM kvenna í Hollandi er nú lokið en miðasalan fór fram í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is. Ennþá er hægt að kaupa miða á leiki Íslands, sem og aðra leiki keppninnnar, í gegnum miðasölu hjá UEFA.
Einnig er minnt á að Icelandair er með til sölu pakkaferðir á leiki Íslands þar sem miðar á leikina eru innifaldir.