Útgefin þátttökuleyfi á öðrum fundi leyfisráðs
Annar fundur leyfisráðs í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2017 fór fram í gær fimmtudag og voru þátttökuleyfi 18 félaga samþykkt. Níu af leyfunum 18 eru gefin út með fyrirvara. Sex félög fengu útgefin þátttökuleyfi á fundi ráðsins fyrir viku síðan.
Þar með hafa öll 24 félögin í efstu tveimur deildum karla fengið útgefin þátttökuleyfi, en þó 11 með fyrirvörum vegna vallarmála eða frekari gagnaskila fyrir 31. mars nk.
Samþykktar leyfisumsóknir á fundi leyfisráðs 16. mars:
· FH
· ÍBV (með fyrirvara um samþykki á vallarleyfi)
· KA - (með fyrirvara um samþykki á vallarleyfi)
· KR - (með fyrirvara um gagnaskil 31. mars)
· Stjarnan - (með fyrirvara um gagnaskil 31. mars)
· Valur
· Víkingur R. - (með fyrirvara um gagnaskil 31. mars)
· Haukar
· HK – (með fyrirvara um gagnaskil 31. mars)
· Fylkir
· Fram – (með fyrirvara um gagnaskil 31. mars)
· Grótta – (með fyrirvara um gagnaskil 31. mars)
· ÍR – (með fyrirvara um gagnaskil 31. mars)
· Keflavík
· Leiknir F.
· Leiknir R.
· Selfoss
· Þróttur R.