U17 karla - Ísland mætir Króatíu í dag
Lokaleikur U17 karla á UEFA-móti sem fram fer í Skotlandi er í dag en þá mæta strákarnir okkar Króatíu.
Byrjunarlið Íslands í leiknum:
Markmaður: Sigurjón Daði Harðarson
Varnarmenn: Egill Darri Þorvaldsson, Leó Ernir Reynisson, Finnur Tómas Pálmason, Atli Barkarson
Miðjumenn: Vuk Óskar Dimitrijevic, Jón Jökull Hjaltason, Ísak Snær Þorvaldsson (F), Nikola Dejan Djuric, Karl Friðleifur Gunnarsson
Sóknarmaður: Stefán Sigurðarson
Ísland er með 1 stig í riðlinum en liðið gerði jafntefli við Austurríki, 2-2, en tapaði svo gegn Skotlandi, 2-1. Króatía er án stiga í riðlinum en það tapaði gegn Austurríki og Skotlandi.
Leikurinn hefst klukkan 11:00 og munum við gera honum skil eins og mögulegt er á Facebook-síðu KSÍ.
Smelltu hérna til að sjá riðilinn.