Hæfileikamótun N1 og KSÍ - Vesturland
Hæfileikamótun KSÍ og N1 fer fram á Akranesi þriðjudaginn 7. mars. Æfingarnar eru fyrir drengi og stúlkur sem eru fædd 2003 og 2004. Það er Dean Martin sem fer fyrir verkefninu.
Dagskrá heimsóknar á Vesturland:
- Þriðjudagur 7. mars.
- 15:30 fundur
- 16:00-17:30 æfing með stúlkum
- 17:30-19:00 æfing með strákum
- 19:00 fundur
Helstu markmið hæfileikamótunar N1 og KSÍ eru að:
- Fjölga þeim leikmönnum sem fylgst er með.
- Fylgjast með yngri leikmönnum en áður og undirbúa þá fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar.
- Koma til móts við minni staði á landsbyggðinni og mæta þeirra þörfum.
- Koma til móts við leikmenn stærri félaga á höfuðborgarsvæðinu sem að öllu jöfnu væru ekki valdir á landsliðsæfingar.
- Bæta samskipti við aðildarfélögin og kynna fyrir þeim stefnu KSÍ í landsliðsmálum.
- Undirbúa leikmenn enn betur til þess að mæta á landsliðsæfingar seinna með fræðslu