A kvenna - Guðmunda Brynja kölluð inn í hópinn
Eins og vitað er meiddist Sandra María Jessen í leiknum gegn Noregi á Algarve Cup í gær. Í myndatökum í gærkveldi kom í ljós að Sandra er óbrotin en hún mun gangast undir frekari skoðun næstu daga.
Ljóst er að Sandra tekur ekki frekari þátt í mótinu og hefur Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari, kallað Guðmundu Brynju Óladóttur inn í hópinn. Guðmunda kemur til móts við hópinn á föstudagsmorgun en Ísland mætir Japan í öðrum leik liðsins á mótinu, föstudaginn 3. mars kl. 14:45.