Hæfileikamótun N1 og KSÍ - Suðurland
Hæfileikamótun N1 og KSÍ fer fram í Hamarshöllinni föstudaginn 3. mars. Æfingarnar eru fyrir stráka sem eru fæddir 2003 og 2004. Það er Dean Martin sem fer fyrir verkefninu.
- Föstudagur 3. mars.
- 17:30 fundur
- 18:00 -19:30 Æfing - stúlkur
- 19:30 - 21:00 Æfing - drengir
- 21:00 fundur.
Helstu markmið hæfileikamótunar N1 og KSÍ eru að:
- Fjölga þeim leikmönnum sem fylgst er með
- Fylgjast með yngri leikmönnum og undirbúa þá fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar
- Koma til móts við minni staði á landsbyggðinni og mæta þeirra þörfum
- Koma til móts við leikmenn stærri félaga á höfuðborgarsvæðinu sem að öllu jöfnu væru ekki valdir á landsliðsæfingar
- Bæta samskipti við aðildarfélögin og kynna fyrir þeim stefnu KSÍ í landsliðsmálum
- Undirbúa leikmenn enn betur til þess að mæta á landsliðsæfingar seinna með fræðslu