Hæfileikamótun KSÍ og N1 - Suðurnes
Hæfileikamótun KSÍ og N1 fer fram í Reykjaneshöllinni mánudaginn 27. febrúar. Æfingarnar verða kl. 16:00-17:30.
Æfingarnar eru fyrir stráka sem eru fæddir 2003 og 2004. Það er Dean Martin sem fer fyrir verkefninu.
Helstu markmið hæfileikamótunar KSÍ eru að:
- Fjölga þeim leikmönnum sem fylgst er með
- Fylgjast með yngri leikmönnum og undirbúa þá fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar
- Koma til móts við minni staði á landsbyggðinni og mæta þeirra þörfum
- Koma til móts við leikmenn stærri félaga á höfuðborgarsvæðinu sem að öllu jöfnu væru ekki valdir á landsliðsæfingar
- Bæta samskipti við aðildarfélögin og kynna fyrir þeim stefnu KSÍ í landsliðsmálum
- Undirbúa leikmenn enn betur til þess að mæta á landsliðsæfingar seinna með fræðslu