Námskeið fyrir dómara mánudaginn 20. febrúar
Námskeið fyrir dómara verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ, mánudaginn 20. febrúar kl. 18:00.
Kristinn Jakobsson, reyndasti FIFA dómari Íslands, mun kenna á námskeiðinu. Aðaláherslan verður lögð á leikstjórn og nýjar hagnýtar leiðbeiningar fyrir dómara. Auk þess geta þátttakendur spurt Kristin spjörunum úr um hin ýmsu efni sem tengjast dómgæslunni.
Áætlað er að námskeiðið standi yfir í tvær klukkustundir. Námskeiðið er ætlað öllum starfandi dómurum sem áhuga hafa á því að bæta sig í starfi.
Skráning er hafin á magnus@ksi.is