Geir sæmdur gullmerki ÍSÍ
Geir Þorsteinsson, fráfarandi formaður KSÍ, var í dag sæmdur gullmerki ÍSÍ. Það var Helga Steinunn Guðmundsdóttir, varaforseti ÍSÍ, sem sæmdi Geir merkinu á ársþingi KSÍ í dag en þingið fer fram í Vestmannaeyjum.
Þá heiðraði Zoran Lakovic frá UEFA Geir fyrir hans störf í þágu knattspyrnunnar á Íslandi og í Evrópu.
Geir stígur nú til hliðar sem formaður KSÍ eftir 10 ár sem formaður en áður hafði hann gegnt starfi framkvæmdastjóra í 10 ár en hann hóf störf hjá KSÍ árið 1992.