Geir kosinn heiðursformaður
Á ársþingi KSÍ sem fram fór í Vestmannaeyjum var Geir Þorsteinsson kosinn heiðursformaður sambandsins.
Samkvæmt 43. grein í lögum KSÍ þá hefur heiðursformaður rétt til setu og málfrelsi á stjórnarfundum KSÍ og kemur fram fyrir hönd sambandsins þegar stjórn þess óskar eftir. Heiðursformenn KSÍ eru nú 3, þeir Geir Þorsteinsson, Eggert Magnússon og Ellert B Schram.