Breiðablik fær viðurkenningu fyrir dómaramál
Stjórn KSÍ hefur ákveðið að veita Breiðablik viðurkenningu fyrir góða frammistöðu í dómaramálum. Ekkert félag á Íslandi þarf að útvega dómara á jafn marga leiki og Breiðablik og hefur frammistaða þeirra verið til fyrirmyndar í hvívetna.
Breiðablik fær í viðurkenningaskyni 10 fótbolta frá KSÍ.