U21 karla - Hópur valinn til úrtaksæfinga um helgina
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið leikmenn til úrtaksæfinga sem fram fara um komandi helgi. Æfingarnar fara fram í Kórnum og eru einungis leikmenn frá íslenskum félagsliðum í úrtakshópnum en hann telur 33 leikmenn frá 16 félögum.