Fjöldi þingfulltrúa á 71. ársþingi KSÍ - Uppfært
Laugardaginn 11. febrúar næstkomandi fer fram 71. ársþing KSÍ og verður það haldið í Höllinni í Vestmannaeyjum. Alls hafa 153 fulltrúar rétt til setu á þinginu, en nú þegar hefur kjörbréfum verið skilað fyrir 147 fulltrúa frá 23 héraðssambandi eða íþróttabandalögum.
Þingið hefst kl. 11:00 og hefst afhending gagna kl. 10:30.