Framboð á 71. ársþingi KSÍ
Framboð til stjórnar KSÍ skal skv. 15. grein laga KSÍ berast skrifstofu KSÍ minnst hálfum mánuði fyrir þing. Kjörnefnd er þó heimilt að samþykkja framboð sem fram kemur síðar ef nægjanlegur fjöldi hefur ekki tilkynnt framboð sitt innan tilkynningarfrests.
Stjórn KSÍ er kosin á knattspyrnuþingi og skal kosning fara þannig fram:
- Kosning formanns annað hvert ár til tveggja ára í senn.
- Kosning 4ra manna í aðalstjórn til tveggja ára en fjórir menn ganga úr aðalstjórn á hverju ári.
- Kosning 4ra manna frá landsfjórðungunum í stjórn til eins árs.
- Kosning 3ja manna til vara í aðalstjórn til eins árs.
- Kosning 4ra manna frá landsfjórðungunum til vara til eins árs.
Hér fyrir neðan er gerð grein fyrir þeim framboðum sem tilkynnt voru til skrifstofu KSÍ hálfum mánuði fyrir þing (28. janúar eða fyrr) og eru þau birt í stafrófsröð.
Kosning formanns
Tveggja ára kjörtímabili Geirs Þorsteinssonar formanns KSÍ lýkur á 71. ársþingi KSÍ 11. febrúar nk.:
Eftirtaldir hafa boðið sig fram til formanns:
- Björn Einarsson Reykjavík
- Guðni Bergsson Reykjavík
Kosning í aðalstjórn
Tveggja ára kjörtímabili eftirtaldra í aðalstjórn KSÍ lýkur á 71. ársþingi KSÍ 11. febrúar nk.:
- Guðrún I. Sívertsen, varaformaður Reykjavík
- Gylfi Þór Orrason, gjaldkeri Reykjavík
- Róbert Agnarsson Reykjavík
- Vignir Már Þormóðsson Akureyri
Eftirtaldir hafa boðið sig fram til aðalstjórnar:
- Borghildur Sigurðardóttir Kópavogi
- Einar Hermannsson Reykjavík
- Guðmundur Torfason Reykjavík
- Guðrún Inga Sívertsen Reykjavík
- Magnús Gylfason Hafnarfirði
- Reynir Vignir Reykjavík
- Róbert Agnarsson Reykjavík
- Vignir Már Þormóðsson Akureyri
Auk ofangreindra sitja í aðalstjórn: (Tveggja ára kjörtímabili þeirra lýkur í febrúar 2018):
- Gísli Gíslason, ritari Akranesi
- Jóhannes Ólafsson Vestmannaeyjum
- Ragnhildur Skúladóttir Reykjavík
- Rúnar V. Arnarson Reykjanesbæ
Kosning aðalfulltrúa landsfjórðunga
Eins árs kjörtímabili aðalfulltrúa landsfjórðunganna lýkur á 71. ársþingi KSÍ 11. febrúar nk.:
- Jakob Skúlason Vesturlandi
- Björn Friðþjófsson Norðurlandi
- Magnús Ásgrímsson Austurlandi
- Tómas Þóroddsson Suðurlandi
Eftirtaldir hafa boðið sig fram til aðalfulltrúa landsfjórðunga:
- Jakob Skúlason Vesturlandi
- Björn Friðþjófsson Norðurlandi
- Magnús Ásgrímsson Austurlandi
- Tómas Þóroddsson Suðurlandi
Kosning varamanna í aðalstjórn
Eins árs kjörtímabili varamanna í aðalstjórn lýkur á 71. ársþingi KSÍ 11. febrúar nk.:
- Ingvar Guðjónsson Grindavík
- Jóhann Torfason Ísafirði
- Kristinn Jakobsson Kópavogi
Eftirtaldir gefa kost á sér sem varamenn í aðalstjórn:
- Ingvar Guðjónsson Grindavík
- Jóhann Torfason Ísafirði
- Kristinn Jakobsson Kópavogi